Já, titilllinn segir það allt. Jólaparturinn er samt djók, ég vona að flestir hafi fattað það!
AAAAAAAllavega....pínu vatn runnið til sjávar síðan síðast.
Rakel er semsagt flutt til Róberts núna og er komin með dagmömmu upp á velli þar sem hún er að fíla sig fínt. Sem þýðir einfaldlega það að nú erum ég og Ingó ein í kotinu fyrir utan aðra hverja helgi og svona einstaka skipti eins og t.d. síðustu daga þar sem Rakel var veik og Róbert mátti ómögulega missa úr skólanum.
Nú er allt komið á fullt að breyta um eigendur á þessarri blessuðu íbúð sem þýðir einfaldlega það að ég og pabbi verðum sameiginlega eigendur.....sem hljómar mjög spennandi því við eigum svo vel saman ég og faðir vor.
Ég er hætt í Austurstrætinu og er byrjuð í Borgartúni...eða átti að byrja á mánudaginn en gat ekki út af Rakel svo ég byrja í fyrramálið. Sjáum bara hvernig það gengur en ég er á fullu að leita mér að nýrri vinnu, algjörlega komin með nóg af þessu Sub-batteríi, jah, fyrir utan nottla starfsfólkið í Ártúni 
En ég og Róbert gerðum okkur grein fyrir þeirri skelfilegu staðreynd á dögunum að ástkær dóttir okkar er að slefa í 1 árs afmæli, ekki kannski svo skelfilegur atburður en þá hættir maður samt að álíta hana litlubarn sem við að sjálfsögðu kærum okkur ekkert um. Innan skamms kemur hún til mín með unglingabólur á nefinu og leðurklæddan gaur í eftirdragi og segist vera ólétt. Let's hope not!
Ingólfur aftur á móti er alveg að gera sig sem stór strákur, hann er meira að segja farinn að viðurkenna að hann sé orðinn 3ja ára en sé ekki bara 2ja ára ennþá og segir mér mörgum sinnum á dag að hann sé stærri en hinir krakkarnir á deildinni (sem er btw alveg heilagur sannleikur). Fór í viðtal hjá honum í leikskólanum á föstudaginn og það kom bara fínt út úr því, hann er að aðlagast vel og síðustu viku til tvær hefur hann tekið stórt stökk í átt til hins betra sem er nottla bara frábært.
En ég er farin að dauðsjá eftir því núna að hafa ekki skráð mig í fjarnám eins og ég hef annars gert síðustu 3 annir því eftir að Rakel flutti í burtu þá stend ég mig að því að hafa ekki rassgat að gera á kvöldin, eða jú kannski rassgat, en ekki hluti sem ég nenni að gera á kvöldin. Væri maður þá ekki til í að gera ritgerð um einhverja leiðinlega kjörbók heldur en að enduruppgötva IRC og Einkamál.is og fleiri mjög svo einmanalega hluti? Jú ég held nú það.
En já, ég er gjörsamlega búin að tæma skálar upplýsinga á þessum bænum í bili, röfla væntanlega með reglulegra millibili héðan í frá ef heldur áfram sem horfir, einmanaleiki á kvöldin og leiðinleg sjónvarpsdagskrá.
Ps. Geðheilsa óskast gefins eða fyrir lítið, á sama stað er til sölu Skoda Octavia, lítillega freknótt en með skemmtilegum aukahljóðum í hvert skipti sem tekið er af stað.
Sólong sökkas..